Oscar, fyrrum leikmaður Chelsea og brasilíska landsliðsins, hefur neyðst til að leggja skóna á hilluna aðeins 34 ára gamall eftir alvarlegt heilsufarsatvik.
Miðjumaðurinn, sem lék síðast með uppeldisfélagi sínu São Paulo, staðfesti tíðindin eftir að hafa fengið hjartaáfall á æfingu.
Miðjumaðurinn, sem lék síðast með uppeldisfélagi sínu São Paulo, staðfesti tíðindin eftir að hafa fengið hjartaáfall á æfingu.
Ákvörðun Oscar á rætur sínar að rekja til alvarlegs atviks sem átti sér stað í undirbúningstímabilinu hjá Sao Paulo, þar sem miðjumaðurinn missti meðvitund við álagspróf á kyrrstæðu hjóli. Það sem í fyrstu var talið vera einfalt yfirlið reyndist mun alvarlegra, en læknateymi félagsins bjargaði lífi hans.
Hjarta hans stoppaði í tvær mínútur sem betur fer tókst að bjarga honum.
Í ljós kom svo að hann gæti ekki haldið áfram að spila fótbolta. Oscar spilaði í nokkur ár með Chelsea en lék lengst af í Kína þar sem hann græddi stórar fjárhæðir.


