Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   mán 06. apríl 2026 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldinho hrósar Yamal - „Sér vel um tíuna"
Mynd: EPA
Ronaldinho, fyrrum leikmaður Barcelona, er mjög ánægður með Lamine Yamal sem hefur sýnt að hann er einn af bestu leikmönnum heims aðeins 18 ára að aldri.

Ronaldinho spilaði með Barcelona frá 2003-2008 en hann spilaði í treyju númer tíu áður en Lionel Messi klæddist henni og nú Yamal.

„Hann er einn sá besti í heimi, hann er enn ungur en er að gera ótrúlega hluti nú þegar. Hann sér vel um tíuna," sagði Ronaldinho.

Ronaldinho er mjög ánægður með liðið undir stjórn Hansi Flick.

„Þeir halda áfram að vera eitt sterkasta lið Evrópu og við horfum alltaf og vonumst til að Barcelona geri eitthvað fallegt."
Slapp
banner
banner