Ítalska landsliðið spilar ekki á HM í sumar eftir að liðið féll úr leik í umspilinu eftir tap gegn Bosníu og Hersegóvínu. Þetta er þriðja heimsmeistaramótið í röð sem Ítalía missir af.
Luciano Spalletti, fyrrum landsliðsþjálfari Ítalíu, er með hugmynd af reglubreytingu sem myndi hagnast landsliðinu í framtíðinni.
Luciano Spalletti, fyrrum landsliðsþjálfari Ítalíu, er með hugmynd af reglubreytingu sem myndi hagnast landsliðinu í framtíðinni.
„Við verðum að hlúa að þeim hæfileikum sem eru að koma fram, og þeir munu alltaf koma fram. Hér er það sem ég legg til: hvað ef við myndum krefjast þess að öll lið í Serie A hafi alltaf leikmann undir 19 ára aldri (U19) á vellinum? Það myndi krefjast þess að hvert lið hefði um fjóra leikmenn tiltæka. Það gerir 80 unga leikmenn til að styðja þá og hjálpa þeim að verða sterkari," sagði Spalletti.
Spalletti stýrir Juventus í dag en hann var rekinn sem landsliðsþjálfari eftir tap gegn Noregi í fyrsta leik HM undankeppninnar. Gennaro Gattuso tók við af honum en hann hætti eftir að honum mistókst að koma liðinu á HM.



