Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 13:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íslendingarnir stórkostlegir í furðulegum leik
Stefán Ingi Sigurðarson.
Stefán Ingi Sigurðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Ingi Sigurðarson og Alfons Sampsted léku báðir frábærlega þegar Go Ahead Eagles unnu 5-0 sigur gegn PEC Zwolle í frekar furðulegum leik í hollensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var furðulegur þar sem hann byrjaði seinna en hann átti að gera þar sem ákveðinn hópur stuðningsmanna Zwolle mættu með klæði sem huldu andlit þeirra. Það var talin stafa meiri hætta af þeim út af því og þess vegna var leiknum frestað um óákveðinn tíma.

Leikmenn Zwolle reyndu að ræða við stuðningsmennina en að lokum þurfti að láta þessa menn yfirgefa völlinn. Leikurinn gat svo hafist um einum og hálfum klukkutíma eftir að hann átti upprunlega að hefjast.

Þegar hann fór af stað þá voru Íslendingarnir í liði Go Ahead Eagles í miklu stuði. Stefán Ingi kom sínum mönnum á bragðið og svo lagði Alfons Sampsted upp næstu tvö mörk.

Staðan var 3-0 í hálfleik og vann Go Ahead að lokum 5-0 sannfærandi sigur. Íslendingaliðið er í ellefta sæti hollensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
banner