Franska fótboltagoðsögnin Eric Cantona er búinn að vera á Íslandi að undanförnu.
Leikkonan Vivian Ólafsdóttir birtir af honum myndband þar sem hún biður hann um að segja sér öll íslensku orðin sem hann hefur lært.
Leikkonan Vivian Ólafsdóttir birtir af honum myndband þar sem hún biður hann um að segja sér öll íslensku orðin sem hann hefur lært.
„Jæja, takk," segir Cantona og bætir við einhverju öðru sem erfitt er að skilja en það fékk Vivian til að hlæja.
Cantona, sem gerði garðinn frægann með Manchester United á árum áður, hefur verið á Íslandi við tökur á kvikmyndinni Hólmavík, sem er tekin upp að hluta til á Hólmavík á Ströndum og í nágrenninu. Hann er núna viðriðinn stórt alþjóðlegt kvikmyndaverkefni með stórum hópi erlendra og íslenskra kvikmyndagerðarmanna og leikara.
Cantona er orðinn mikill Íslandsvinur en hann kom til að mynda hingað til lands árið 2018 til að gera heimildarmynd um árangur íslenska landsliðsins í fótbolta.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem Vivian birti.

