Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 10:22
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd gæti losað sig við Ugarte - Vini Jr í ensku úrvalsdeildina?
Powerade
Man Utd íhugar að losa sig við Ugarte
Man Utd íhugar að losa sig við Ugarte
Mynd: EPA
Vini Jr í ensku úrvalsdeildin?
Vini Jr í ensku úrvalsdeildin?
Mynd: EPA
Manuel Ugarte gæti yfirgefið Manchester United, Vinicius Junior horfir til ensku úrvalsdeildarinnar og Liverpool vill fá leikmann í skiptum fyrir Mohamed Salah. Þetta er allt saman í Powerade-slúðurpakka dagsins.

Manchester United gæti reynt að losa sig við úrúgvæska miðjumanninn Manuel Ugarte (24) í sumar. Aston Villa, Newcastle United og Juventus eru meðal félaga sem hafa áhuga á Ugarte. (Caught Offside)

Umboðsmenn á vegum Vinicius Jr (25), leikmanns Real Madrid, hafa sett sig í samband við Man Utd, Man City, Chelsea og Arsenal varðandi möguleg félagaskipti hans. (Teamtalk)

Liverpool er að skoða það að fá Marcos Leonardo (22), leikmann Al Hilal, í stað Mohamed Salah. (Give Me Sport)

Amadou Onana (24), miðjumaður Aston Villa, gæti tekið næsta skref ferilsins í sumar, en Manchester United er eitt af mörgum félögum sem vilja fá hann. (Football Insider)

Luka Vuskovic (19), sem er á láni hjá Hamburger SV frá Tottenham, hefur gefið í skyn að hann muni snúa aftur til Tottenham þrátt fyrir áhuga frá stórliðum í Evrópu. (Standard)

Chelsea er að íhuga að fá Robin Roefs (23), markvörð Sunderland, til að taka við keflinu af Robert Sanchez. (Teamtalk)

RB Leipzig ætlar að reyna halda Fílabeinsstrendingnum Yan Diomande (19) með því að bjóða honum eins árs framlengingu og hærri laun. Hann er á óskalista margra stórliða fyrir sumarið. (Fabrizio Romano)
Slapp
banner
banner