Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 10:05
Elvar Geir Magnússon
„Erfitt að blanda saman tveimur tímabilum“ - Kemst Íslendingaliðið á sigurbraut?
Jón Dagur í baráttunni í Evrópudeildinni.
Jón Dagur í baráttunni í Evrópudeildinni.
Mynd: EPA
Kristall í landsleiknum gegn Kanada á dögunum.
Kristall í landsleiknum gegn Kanada á dögunum.
Mynd: KSÍ
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Mynd: EPA
Íslendingaliðið Brann hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í norsku úrvalsdeildinni en vonast til þess að komast á sigurbraut í dag þegar það heimsækir HamKam.

Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, sótti tvo Íslendinga til viðbótar í vetur en fyrir hjá félaginu voru Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson.

Jón Dagur Þorsteinsson kom á láni frá Herthu Berlín og Kristall Máni Ingason var keyptur frá Sönderjyske. Fótbolti.net ræddi við þá báða í Toronto þar sem þeir voru með landsliðinu.

Möguleiki á bikar
„Auðvitað hafa þetta verið vonbrigði í deildinni og við erum úr leik í Evrópudeildinni en erum í undanúrslit í bikarnum og náum vonandi að vinna þennan bikar," segir Jón Dagur en Brann mætir Álasundi í undanúrslitum 22. apríl.

Brann fór alla leið í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en féll úr leik gegn ítalska liðinu Bologna. Liðið fékk því lítið sem ekkert frí áður en nýtt tímabil kom.

„Liðið hafði örugglega gott að því þegar landsleikjaglugginn kom að kúpla sig aðeins út og fá smá frí. Það er örugglega erfitt fyrir flesta leikmenn að blanda saman tveimur tímabilum. Vonandi nýtist fríið vel núna og við keyrum á þetta," segir Jón Dagur.

Eins og áður segir er hann hjá Brann á lánssamningi, er möguleiki á að hann gangi alfraið í raðir norska félagsins?

„Það verður bara að koma í ljós. Hausinn er ekki kominn það langt, það eru enn nokkrir mánuðir í það."

Hef engar áhyggjur af þessu
Kristall Máni segir að það hafi ekki verið erfið ákvörðun að ganga í raðir Brann.

„Þetta var 'no brainer' eftir að Freysi hringdi í mig. Maður var spenntur fyrir því að hitta Sævar og strákana, og fyrir klúbbnum og að æfa og spila undir Freysa," segir Kristall.

Jón Dagur Þorsteinsson kom á láni frá Herthu Berlín og Kristall Máni Ingason var keyptur frá Sönderjyske. Fótbolti.net ræddi við þá báða meðan þeir voru í landsliðsverkefninu í Toronto.

Meiðslalisti Brann hefur verið langur og lykilmenn verið fjarverandi, Sævar og Atli þar á meðal.

„Þetta er ákveðið púsl sem Freysi þarf að púsla en ég hef engar áhyggjur af þessu, Liðið hefur gert vel að mörgu leyti í þessum leikjum en þetta þarf að fara að detta okkar megin. Þetta gæti orðið flott tímabil," segir Kristall og talar um að menn þurfi að stilla hausinn rétt.

„Maður skynjaði aðeins á mönnum að menn voru orðnir smá þreyttir. Þetta er auðvitað erfitt að koma úr þessari Evróputörn og byrja deildina svo á móti norsku liði á gervigrasi. Menn þurfa bara að byrja þetta vel í næsta leik á móti Ham-Kam."

Hvað vill Kristall gera sem leikmaður Brann?

„Það er meiri pressa þarna en þar sem ég var. Ég vil hjálpa liðinu að ná allavega topp þremur og vonandi hjálpa ég með mörkum og stoðsendingum. Ég legg upp með að vera skemmtilegur leikmaður innan vallar, segir Kristall að lokum.
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Slapp
banner