Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 21:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hákon skoraði í gríðarlega sterkum sigri - Sigurður Bjartur á skotskónum
Mynd: EPA
Mynd: AD Merida
Hákon Arnar Haraldsson var á skotskónum þegar Lille vann gríðarlega sterkan sigur á Lens í frönsku deildinni.

Hann kom liðinu yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði á opið markið eftir sendingu frá Matias Fernandez-Pardo inn á teiginn.

Leiknum lauk með 3-0 sigri Lille en liðið stökk úr 5. sæti upp í það þriðja. Liðið er með 50 stig, níu stigum á eftir Lens sem er í 2. sæti. Liðið er stigi á undan Marseille og tveimur stigum á undan Lyon en bæði lið eiga leik til góða.

Elías Rafn Ólafsson var í markinu þegar Midtjylland og Sonderjyske gerðu 2-2 jafntefli í dönsku deildinni. Daníel Leó Grétarsson, leikmaður Sönderjyske, er fjarverandi vegna meiðsla. Midjylland er í 2. sæti með 48 stig, fjórum stigum á eftir AGF sem á leik til góða. Sonderjyske er í 3. sæti með 38 stig.

Sigurður Bjartur Hallsson skoraði mark AD Merida eftir að hafa komið inn á sem varamaður í 4-1 tapi gegn Ponferraadina í spænsku C-deildinni. Merida er í 10. sæti með 44 stig eftir 31 umferð.

Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Twente sem vann Ajax 2-1 í hollensku deildinni. Willum Þór Willumsson var ónotaður varamaður í 2-0 sigri NEC Nijmegen gegn Excelsior. Brynjólfur Willumsson kom inn á sem varamaður í 2-0 sigri Groningen gegn Telstar en Nökkvi Þeyr Þórisson þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik hjá Telstar. Hann missti af síðasta leik vegna meiðsla.

Nijmegen er í 3. sæti með 53 stig, Twente er í 4. sæti með 50 stig, Groningen er í 10. sæti með 41 stig og Telstar er í 15. sæti með 27 stig.

Alex Freyr Elísson spilaði allan leikinn fyrir NSÍ Runavík sem vann Toftir 2-1 í færeysku deildinni. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ. Liðið er á toppnum með tíu stig eftir fjórar umferðir.

Gísli Gottskálk Þórðarson kom inn á sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Lech Poznan gerði markalaust jafntefli gegn Jagiellonia í pólsku deildinni. Poznan er á toppnum með 45 stig, þremur stigum á undan Jagiellonia.

Aron Einar Gunnarsson var tekinn af velli undir lok leiksins þegar Al-Gharafa tapaði 3-2 gegn Al-Duhail í efstu deild í Katar. Al-Gharafa er í 3. sæti með 34 stig eftir 20 umferðir. Þá kom Sveinn Aron Guðjohnsen inn á sem varamaður þegar Cavese tapaði 1-0 gegn Casertana í ítölsku C-deildinni. Cavese er í 13. sæti C-riðils með 36 stig.

Sjáðu mark Sigurðar Bjarts hér fyrir neðan.


Slapp
banner
banner
banner