Stjarnan er komin áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir nauman sigur á Selfossi, sem leikur í 2. deild.
Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Selfoss í leiknum en Jón Daði Böðvarsson var fjarri góðu gamni.
Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Selfoss í leiknum en Jón Daði Böðvarsson var fjarri góðu gamni.
Staðan var markalaus í hálfleik en í byrjun seinni hálfleiks kom Emil Atlason Stjörnumönnum yfir. Hann var svo aftur á ferðinni um miðbik seinni hálfleiks.
Einar Bjarki Einarsson minnkaði muninn fyrir Selfoss á 85. mínútu og í uppbótartíma voru gestirnir ekki langt frá því að jafna. Ekki miklu muna en Stjarnan fer áfram.
Ægir úr Þorlákshöfn fer einnig áfram en þeir völtuðu yfir Árbæ í Breiðholtinu. Ægismenn gengu á lagið í seinni hálfleik og skoruðu fimm mörk eftir hlé.
Stjarnan 2 - 1 Selfoss
1-0 Emil Atlason ('47 )
2-0 Emil Atlason ('65 )
2-1 Einar Bjarki Einarsson ('85 )
Lestu um leikinn
Árbær 1 - 7 Ægir
0-1 Einar Breki Sverrisson ('8 )
0-2 Bjarki Rúnar Jónínuson ('28 )
1-2 Egill Helgi Guðjónsson ('32 )
1-3 Atli Rafn Guðbjartsson ('55 )
1-4 Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('61 )
1-5 Harley Willard ('63 )
1-6 Harley Willard ('75 )
1-7 Jordan Adeyemo ('80 )

