Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   sun 05. apríl 2026 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrrum leikmaður Brighton velur Chelsea
Mynd: EPA
Valentin Barco hefur samþykkt að ganga til liðs við Chelsea í sumar.

Barco er 21 árs gamall argentískur vinstri bakvörður en hann er á mála hjá Strasbourg, systrafélagi Chelsea.

Hann gekk til liðs við Brighton frá Boca Juniors árið 2024 en náði ekki að sanna sig þar. Hann fór á lán til Sevilla og Strasbourg áður en franska félagið keypti hann fyrir tæpar 8 milljónir punda í fyrra.

Hann hefur spilað tvo A-landsleiki fyrir Argentínu og skorað í þeim eitt mark.
Slapp
banner
banner
banner