Dagur Dan Þórhallsson var í byrjunarliði CF Montreal sem tapaði 3-0 gegn New England Revolution í bandarísku MLS deildinni í kvöld.
Dagur Dan var tekinn af velli í hálfleik en þá var staðan 1-0. Liðið hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabilsins en liðið er aðeins með þrjú stig eftir sex umferðir.
Dagur Dan var tekinn af velli í hálfleik en þá var staðan 1-0. Liðið hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabilsins en liðið er aðeins með þrjú stig eftir sex umferðir.
Þorleifur Úlfarsson spilaði allan leikinn þegar Loudoun United gerði 2-2 jafntefli gegn Birmingham Legion í USL deildinni.
Loudoun er með tvö stig eftir fjóra leiki. Þorleifur hefur skorað tvö mörk.


