Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 13:15
Brynjar Ingi Erluson
Skorað gegn öllum liðunum og fyrsti Tékkinn í hundrað mörk
Patrik Schick
Patrik Schick
Mynd: EPA
Tékkneski framherjinn Patrik Schick kom sér í sögubækurnar um helgina er hann skoraði í ótrúlegum 6-3 sigri Bayer Leverkusen á Wolfsburg og hefur hann nú skorað gegn öllum liðum sem hann hefur mætt í þýsku deildinni.

Schick skoraði sitt 100. deildarmark í topp fimm deildum í Evrópu er hann setti hann af vítapunktinum snemma í síðari hálfleik.

Það gerði hann að fyrsta Tékkanum til að rjúfa hundrað marka múrinn í topp fimm deildum. Jan Köller skoraði 73 mörk með Borussia Dortmund, Mónakó og Nürnberg en Milan Baros aðeins 35 mörk með Liverpool og Lyon..

Patrik Berger skoraði 42 mörk með Borussia Dortmund, Liverpool, Aston Villa og Portsmouth og þá hefur Tomas Soucek gert 41 deildarmark með West Ham. Nafni hans, Tomas Rosicky, gerði 39 deildarmörk með Dortmund og Arsenal.

Schick hefur skorað 84 mörk í þýsku deildinni og sextán mörk í Seríu A á Ítalíu. Markið hans gegn Wolfsburg um helgina þýðir að hann hefur skorað mark gegn öllum liðunum sem hann hefur mætt á þessum sjö árum í þýsku deildinni.


Slapp
banner
banner