Nicky Butt, fyrrum leikmaður Manchester United, væri til í að sjá Portúgalann Jose Mourinho taka aftur við Manchester United.
United er að leita sér að stjóra til framtíðar eftir að Rúben Amorim var rekinn frá félaginu í janúar. Michael Carrick hefur stýrt liðinu til bráðabirgða og gert býsna vel.
United er að leita sér að stjóra til framtíðar eftir að Rúben Amorim var rekinn frá félaginu í janúar. Michael Carrick hefur stýrt liðinu til bráðabirgða og gert býsna vel.
Fjölmargir hafa verið orðaðir við starfið en Butt væri til í að sjá Mourinho aftur við stjórnvölinn á Old Trafford. Hann var þar stjóri frá 2016 til 2018 og vann meðal annars Evrópudeildina.
„Ég myndi vilja fá hann til baka. Hann er sigurvegari og getur drifið félagið áfram, en þeir sem stjórna myndu aldrei leyfa þetta," sagði Butt.
Butt telur að Mourinho myndi vilja hafa puttana of mikið í leikmannamálum og þeir sem stjórna á bak við tjöldin hjá United yrðu ekki hrifnir af því.
Mourinho er í dag stjóri Benfica í heimalandi sínu Portúgal.


