Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   sun 05. apríl 2026 20:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Inter fór illa með Roma - Drauma endurkoma hjá Martinez
Mynd: EPA
Inter 5 - 2 Roma
1-0 Lautaro Martinez ('1 )
1-1 Gianluca Mancini ('40 )
2-1 Hakan Calhanoglu ('45 )
3-1 Lautaro Martinez ('52 )
4-1 Marcus Thuram ('55 )
5-1 Nicolo Barella ('63 )
5-2 Lorenzo Pellegrini ('70 )

Inter Milan fór illa með Roma í síðasta leik dagsins í ítölsku deildinni. Lautaro Martinez sneri aftur í lið Inter en hann hefur verið fjarverandi vegna meiðsla síðan um miðjan febrúarmánuð.

Martinez gerði sér litið fyrir og kom Inter yfir þegar tæp mínúta var liðin af leiknum. Gianluca Mancini jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks en Hakan Calhanoglu endurheimti forystuna fyrir Inter í blálok fyrri hálfleiksins.

Martinez skoraði sitt annað mark og þriðja mark Inter snemma í seinni hálfleik og Marcus Thuram bætti fjórða markinu við stuttu síðar. Nicolo Barella innsiglaði sigurinn eftir rúmlega klukkutíma leik áður en Lorenzo Pellegrini klóraði í bakkann fyrir Roma.

Inter er á toppnum með 72 stig, níu stigum á undan Milan sem á leik til góða. Roma er í 6. sæti með 54 stig, jafn mörg stig og Juventus sem situr í 5. sæti og þremur stigum á eftir Como í 4. sæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 36 27 4 5 85 31 +54 85
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Juventus 36 19 11 6 59 30 +29 68
4 Milan 35 19 10 6 48 29 +19 67
5 Roma 35 20 4 11 52 29 +23 64
6 Como 35 17 11 7 59 28 +31 62
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Lazio 36 13 12 11 39 37 +2 51
9 Udinese 36 14 8 14 45 46 -1 50
10 Bologna 35 14 7 14 42 41 +1 49
11 Sassuolo 36 14 7 15 44 46 -2 49
12 Torino 36 12 8 16 41 59 -18 44
13 Parma 35 10 12 13 25 42 -17 42
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 35 8 13 14 38 49 -11 37
16 Cagliari 36 9 10 17 36 51 -15 37
17 Lecce 36 8 8 20 24 48 -24 32
18 Cremonese 35 6 10 19 27 53 -26 28
19 Verona 35 3 11 21 24 57 -33 20
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner