Faðir argentinska varnarmannsins Cristian Romero segir son sinn vera með riftunararákvæði í samningi hans við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham.
Romero er 27 ára gamall miðvörður sem hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Tottenham síðustu ár.
Talið er að hann vilji yfirgefa Tottenham í sumar og eru mörg stór lið sögð á eftir honum, þar á meðal Madrídarliðin, Atlético og Real.
Faðir Romero mætti í viðtal við Cadena 3 og sagði son sinn vera með riftunarákvæði í sumar en samkvæmt honum geta félög keypt hann fyrir 38 til 53 milljónir punda.
„Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Tottenham og er með mjög hátt klásúluverð. Enska félagið mun ekki leyfa honum að fara frítt. Ákvæðið er í kringum 37,8 til 53 milljónir punda. Ég geri ráð fyrir að þeir vilji endurheimta fjármagnið sem þeir lögðu í hann,“ sagði Victor, faðir Cristian.
Það mun líklega einhver hreinsun eiga sér staða innan raða Tottenham í sumar eftir nokkur arfaslök tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hafnaði í 17. sæti á síðustu leiktíð og situr í sama sæti þegar sjö umferðir eru eftir.


