Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ef ég væri forseti ítalska sambandsins myndi ég hafa mig í huga"
Mynd: EPA
Antonio Conte, stjóri Napoli, er tilbúinn til að taka við ítalska landsliðinu en hann tjáði sig um starfið eftir 1-0 sigur liðsins á Milan í gær.

Sigurinn kom liðinu upp fyrir Milan í 2. sæti ítölsku deildarinnar.

Conte hefur verið orðaður við ítalska landsliðið en hann var spurður að því hvernig honum finnist um þennan orðróm.

„Ef ég væri forseti ítalska fótboltasambandsins myndi ég hafa mig í huga ásamt öðrum. Af mörgum ástæðum myndi ég setja Conte á þann lista," sagði Conte.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner