Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, var ánægður með 1-0 baráttusigur á Breiðablik í 2. umferð deildarinnar í dag. Þórður Ingason, markvörður Fjölnis, hélt hreinu annan leikinn í röð.
Hans Viktor Guðmundsson skoraði fyrsta mark sitt í deildinni og var það heldur betur skrautlegt en Igor Jugovic átti þá skot fyrir utan teig sem fór í bakið á Hans og í markið. Það reyndist eina mark leiksins og fyrsti sigur Fjölnis kominn í hús.
„Það er alltaf skemmtilegast að vinna 1-0, halda hreinu og skora eitt mark. Við fórum varnarsinnað inn í leikinn. Við vitum að Blikarnir eru með frábært lið og geta haldið bolta vel en við náðum að loka vel á þá og þeir sköpuðu lítið," sagði Ágúst eftir leik.
„Eftir að ég gerði tvær skiptingar tíu mínútur út í hálfleikinn, þá opnaðist þetta aðeins og við gengum á lagið og vildum sigra að sjálfsögðu á heimavelli. Við stóðumst áhlaupið í lokin frá Blikunum. Varnarlega flottur leikur og Doddi var flottur í markinu."
„Uppstillingin kom mér á óvart en leikskipulagið kom ekki á óvart. Það kom auðvitað á óvart að Oliver var ekki í liðinu, hann var meiddur. Við gerðum þetta vel í dag og beittum þeim þannig að þeir þurftu að beita löngum sendingum."
Mees Siers, sem lék með Eyjamönnum á síðasta ári, kom inn í liðið í dag, en hann kom til félagsins á föstudaginn. Þá fékk Birnir Snær Ingason sénsinn í byrjunarliðinu og nýtti hann ágætlega.
„Mees Siers kom á föstudaginn. Ég fékk hann í félagið til að spila hægri bakvörð og hann spilaði þar í dag og stóð sig vel. Birnir kom inná eftir frábæra innkomu í síðasta leik og fylgdi því vel eftir með því að eiga flotta spretti í dag," sagði Ágúst
„Ef þú færð ekki mark á þig þá er það mjög gott. Í Eyjum fengum við fullt af færum og hornspyrnum, ekki eins mikið af færum í dag en við nýttum það sem er í boði."
Þórður Ingason, fyrirliði liðsins, hélt hreinu annan leikinn í röð. Hann átti margar góðar vörslur og var þeim afar mikilvægur í dag.
„Doddi var flottur og er fyrirliðinn hjá okkur. Stoltur af því að hann sé fyrirliði og við erum ánægðir með hann," sagði Ágúst í lokin.






















