Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Vilja fá svar frá Milan fyrir lok HM-gluggans
Mynd: EPA
Chelsea hefur lagt fram 12,6 milljóna punda tilboð í Mike Maignan, markvörð AC Milan á Ítalíu.

Maignan er 29 ára gamall og er aðalmarkvörður franska landsliðsins.

Samningur hans við Milan rennur út á næsta ári og því fáanlegur á lægra verði, en Chelsea gerir nú lokatilraun til að reyna að fá hann áður en HM-glugginn lokar á þriðjudag.

Félög sem taka þátt í HM félagsliða fá sérstakan glugga til að fá leikmenn áður en keppnin fer af stað en sá gluggi lokar á þriðjudag.

Fabrizio Romano segir Chelsea hafa lagt fram 12,6 milljóna punda tilboð í Maignan.

Chelsea vill fá svar frá Milan í síðasta lagi á þriðjudag, en enska félagið er bjartsýnt á að samkomulag náist við ítalska félagið.

Maignan hefur tvisvar verið í liði ársins á Ítalíu og var hann þá valinn besti markvörður EM á síðasta ári. Hann á 31 landsleik að baki fyrir Frakkland
Athugasemdir