Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 10:52
Brynjar Ingi Erluson
Ben Davies framlengir við Tottenham til 2026
Mynd: EPA
Tottenham hefur virkjað ákvæði um að framlengja samning velska varnarmannsins Ben Davies til 2026.

Davies er 32 ára gamall miðvörður sem getur einnig spilað sem vinstri bakvörður.

Hann er reyndasti leikmaður Tottenham en hann hefur spilað með félaginu frá 2014.

Davies á að baki 358 leiki í öllum keppnum með Tottenham og er aðeins einn af 29 leikmönnum sem hafa náð þeim áfanga að spila 350 leiki fyrir félagið.

Þá hefur hann spilað 73 leiki í Evrópukeppni og er aðeins þremur leikjum frá félagsmeti.

Davies var orðaður við Wrexham, sem komst upp í ensku B-deildina í síðasta mánuði, en Tottenham hefur ákveðið að virkja ákvæði í samningi Davies sem framlengir samning hans út næsta tímabil.

Tottenham hafnaði í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili, en liðið vann Evrópudeildina, sem var fyrsti titill liðsins í 17 ár og komst um leið í Meistaradeildina fyrir næsta tímabil.


Athugasemdir
banner