
Norður-Írland tekur á móti Íslandi í vináttulandsleik hér í Belfast á þriðjudagskvöld. Þetta verður sjöunda viðureign þjóðanna en sagan er með okkur í liði.
Fjórum sinnum hefur Ísland fagnað sigri gegn Norður-Írum, sem hafa unnið tvo leiki.
Fjórum sinnum hefur Ísland fagnað sigri gegn Norður-Írum, sem hafa unnið tvo leiki.
Belfast Telegraph rifjar upp síðustu heimsókn íslenska landsliðsins til Belfast og talar um niðurlægingu.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu þá í 3-0 útisigri Íslands á Windsor Park. Leikurinn fór fram 2006 og var í undankeppni EM.
„Ísland gerðu sér lítið fyrir og lögðu Norður-Íra á troðfullum leikvangnum í Belfast í dag. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik þar sem sóknarleikur Íslendinga blómstraði og þá var varnarleikurinn mjög öruggur allan leikinn," skrifaði Stefán Guðberg Sigurjónsson í umfjöllun um leikinn á Fótbolta.net.
Liðin mættust svo aftur á Laugardalsvelli 2007 og þar vann Ísland 2-1 sigur. Ármann Smári Björnsson skoraði mark Íslands en sigumarkið kom á 89. mínútu og var sjálfsmark.
2001 gerði Ísland hinsvegar ekki góða ferð á Windsor Park. Þá unnu heimamenn 3-0 sigur.
Athugasemdir