Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 11:19
Elvar Geir Magnússon
Belfast
Bradley: Flott frammistaða en viljum sigur gegn Íslandi
Conor Bradley, leikmaður Liverpool, er í Norður-írska hópnum sem mætir Íslandi á þriðjudag.
Conor Bradley, leikmaður Liverpool, er í Norður-írska hópnum sem mætir Íslandi á þriðjudag.
Mynd: EPA
George Saville hendir sér í tæklingu í leik Danmerkur og Norður-írlands í gær.
George Saville hendir sér í tæklingu í leik Danmerkur og Norður-írlands í gær.
Mynd: EPA
Conor Bradley, leikmaður Liverpool, er meðal leikmanna sem eru í landsliðshópi Norður-Írlands fyrir vináttulandsleikinn gegn Íslandi á þriðjudagskvöld.

Norður-Írar töpuðu naumlega fyrir Danmörku í vináttulandsleik á Parken 2-1 í gær en Norður-írska liðið fær hrós í fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína og gott skipulag.

„Við getum lært mikið af þessum leik. Vonandi getum við fylgt þessum leik eftir með frammistöðu og sigri á þriðjudaginn," sagði Bradley eftir leikinn í gær.

Michael O’Neill, landsliðsþjálfari Norður-Íra, hafði þetta að segja eftir leikinn:

„Við byrjuðum leikinn mjög vel og komumst verðskuldað yfir. Mér fannst við verjast virkilega vel í fyrri hálfleiknum og einstaklingsframtak frá Gustav Isaksen gaf þeim jöfnunarmark rétt fyrir hálfleik. Það er engin skömm af því að koma hingað og tapa 2-1 en í seinni hálfleik hefðum við þurft að halda betur í boltann. Þá koma færin," sagði O’Neill og segir að leikurinn gegn Íslandi verði alls ekki auðveldur.

Norður-írski hópurinn:

Markverðir: Pierce Charles (Sheffield Wednesday), Conor Hazard (Plymouth Argyle), Luke Southwood (Bolton Wanderers).

Varnarmenn: Trai Hume and Daniel Ballard (both Sunderland), Brodie Spencer (Huddersfield Town), Conor Bradley (Liverpool), Ruairi McConville (Norwich City), Paddy McNair (San Diego FC), Terry Devlin (Portsmouth), Aaron Donnelly (Dundee).

Miðjumenn: George Saville (Millwall), Shea Charles (Southampton), Alistair McCann (Preston North End), Isaac Price (West Bromwich Albion), Paul Smyth (Queens Park Rangers), Ethan Galbraith (Leyton Orient), Brad Lyons (Kilmarnock), Justin Devenny (Crystal Palace), Caolan Boyd-Munce (St Mirren), Callum Marshall (West Ham United), Jamie Donley (Leyton Orient, on loan from Tottenham Hotspur).

Sóknarmenn: Dion Charles (Huddersfield Town), Lee Bonis (ADO Den Haag), Dale Taylor (Nottingham Forest), Ronan Hale (Ross County).
Athugasemdir
banner
banner