Hearts og Celtic gætu mögulega spilað hreinan úrslitaleik um Skotlandsmeistaratitilinn í lokaumferð deildarinnar. Liðin leika í Glasgow þann 16. maí.
Af öryggisástæðum hefur skoska deildin reynt að forðast hreina úrslitaleiki milli Celtic og Rangers í gegnum árin en liðin mætast í þriðju síðustu umferðinni þann 10. maí.
Af öryggisástæðum hefur skoska deildin reynt að forðast hreina úrslitaleiki milli Celtic og Rangers í gegnum árin en liðin mætast í þriðju síðustu umferðinni þann 10. maí.
Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon spilar með Hearts en Edinborgarliðið hefur komið gríðarlega á óvart á tímabilinu.
Hearts er með eins stigs forystu á Rangers og þremur stigum á undan Celtic sem er í þriðja sæti. Fimm umferðir eru eftir.
Síðasti deildarleikur Rangers verður á útivelli gegn Falkirk

