Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 15:00
Elvar Geir Magnússon
Amad vill að Carrick verði ráðinn til frambúðar
Amad Diallo og Michael Carrick.
Amad Diallo og Michael Carrick.
Mynd: EPA
Amad Diallo vængmaður Manchester United hefur opinberlega sagt þá skoðun sína að Michael Carrick ætti að fá stjórastarfið til frambúðar.

Carrick var ráðinn út tímabilið eftir að Rúben Amorim var látinn taka pokann sinn. Síðan hefur liðið unnið sjö af tíu leikjum og aðeins tapað einum. Liðið þarf fjóra sigra og jafntefli úr síðustu sjö leikjunum til að snúa aftur í Meistaradeildina eftir tveggja ára fjarveru.

Stjórn United ætlar ekki að flýta sér að taka ákvörðun og er líklegt til að bíða með að taka ákvörðun til loka tímabils.

Möguleikunum hefur farið fækkandi, Thomas Tuchel framlengdi við enska sambandið og Roberto De Zerbi samdi við Tottenham.

„Persónulega finnst mér hann vera rétti maðurinn," segir Amad um Carrick.

„Hann er með mikla reynslu, hann þekkir félagið og DNA þess. Hann á gott samband við alla leikmenn. Stundum getur svona stjóri komið félaginu þangað sem það á heima."

„Það eru ekki leikmennirnir sem taka ákvörðun en mín hreinskilna skoðun er að við erum gríðarlega ánægðir með að hafa Michael Carrick sem stjóra."
Slapp
banner
banner