Heimild: Bikarkvöld á RÚV
„Ef ég væri Þórsari væri ég mjög áhyggjufullur ef þetta var nánast frumsýning á tímabilinu," segir fótboltalýsandinn Hörður Magnússon um frammistöðu Þórs í 2-4 tapi gegn FH í Mjólkurbikarnum.
Hörður og íþróttafréttamaðurinn Gunnar Birgisson fóru yfir bikarleikina í markaþætti á RÚV í gær og voru ekki hrifnir af spilamennsku nýliðana frá Akureyri.
„Margir af leikmönnum sem Þórsarar telja lykilmenn fyrir sumarið líta ekki vel út í þessum leik. Emmanuel Affi sem er í vörninni var oft á tíðum illa leikinn, Aron átti ekki góðan leik í markinu," segir Gunnar og segir að Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari hafi fengið vont svar frá sínum mönnum.
„Mestu vonbrigðin eru þau að maður bjóst við meiri eldmóð af Þórsurum. Löng bið eftir því að komast í deild þeirra bestu, bikarleikur yfir páska inni í Boga á Akureyri. Mér fannst ekkert bera þess merki að það væri brjálað hungur í Þórsurum. Það finnst mér helsta áhyggjuefnið; að FH skuli geta komið þarna og stýrt leiknum."

Lestu um leikinn: Þór 2 - 4 FH
Telur að búið sé að vanreikna FH
„Margir leikmenn FH áttu stórgóðan dag, sænski varnarmaðurinn Tobias Carlsson sem þeir fengu inn leit mjög vel út og Tómas Orri Róbertsson stýrði þessum leik eins og herforingi inni á miðsvæðinu," segir Gunnar og Hörður tekur undir:
„Á engum tímapunkti í leiknum var Þór betri í leiknum. FH var betra frá A til Ö. Betra skipulag, pressa, settu Þórsarana í vonda stöðu til að gera mistök. FH spilaði leikinn mjög vel, ferskleiki og baráttuandi," segir Hörður.
Adolf Daði Birgisson sem kom frá Stjörnunni skoraði tvö mörk fyrir FH en Hafnarfjarðarliðið hefur misst lykilmenn úr sóknarleiknum frá síðasta tímabili.
„Það á eftir að koma í ljós hvort Adolf verði notaður sem svona annar framherji eða eiginlegur framherji. Hann var frystur að mörgu leyti hjá Stjörnunni í fyrra. Hans frægðarsól hefur aðeins dvínað en þessi mörk gefa honum gríðarlega mikið sjálfstraust inn í mótið," segir Hörður, sem er fyrrum markahrókur FH, og er bjartsýnn fyrir tímabilið hjá Hafnfirðingum.
„Það er verið að spá FH 8.-10. sæti en að mínu mati getur liðið alveg verið í efri hlutanum. Ég tel að búið sé að vanreikna þá hvað varðar styrkleika og getu."