Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
banner
   fös 10. apríl 2026 20:58
Brynjar Ingi Erluson
England: Úlfarnir á barmi falls eftir stórt tap í Lundúnum
Kostas Mavropanos setti tvö í netið hjá Úlfunum
Kostas Mavropanos setti tvö í netið hjá Úlfunum
Mynd: EPA
West Ham 4 - 0 Wolves
1-0 Konstantinos Mavropanos ('42 )
2-0 Taty Castellanos ('66 )
3-0 Taty Castellanos ('68 )
4-0 Konstantinos Mavropanos ('83 )

West Ham vann fallbaráttuslaginn gegn Wolves, 4-0, í 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum í kvöld.

Þetta var mikilvægur leikur fyrir bæði lið þó sérstaklega West Ham sem á töluvert betri möguleika á að bjarga sér frá falli en Úlfarnir.

Úlfarnir voru betra liðið í fyrri hálfleiknum en það eru mörkin sem telja og voru það Hamrarnir sem gerðu fyrsta markið á 42. mínútu er Kostas Mavropanos skoraði með laglegu skallamarki eftir fyrirgjöf Jarrod Bowen.

Mikilvægt hjá West Ham sem náði síðan að ganga frá leiknum um miðbik síðari hálfleiks.

Taty Castellanos skoraði tvö mörk á tveimur mínútum. Fyrra markið gerði hann eftir mistök gestanna og seinna markið stuttu eftir að Úlfarnir tóku miðju. Argentínumaðurinn gerði algerlega út um leikinn, en Hamrarnir áttu eitt mark á tankinum.

Það gerði Mavropanos með klippu úr teignum eftir að varnarmaður Wolves skallaði hornspyrnu aftur fyrir sig og á Mavropanos sem var heitur og setti hann í gegnum allan pakkann og inn.

Hamrarnir komu sér upp úr fallsæti og í 17. sæti með 32 stig á meðan Úlfarnir eru á límdir við botninn með aðeins 17 stig, sem gætu mögulega fallið í næstu umferð.
Slapp
banner