Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   fös 10. apríl 2026 20:39
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Malen með þrennu fyrir Roma - Tíu mörk í tólf leikjum
Donyell Malen setti þrennu
Donyell Malen setti þrennu
Mynd: EPA
Roma 3 - 0 Pisa
1-0 Donyell Malen ('3 )
2-0 Donyell Malen ('43 )
3-0 Donyell Malen ('52 )

Hollendingurinn Donyell Malen setti þrennu í 3-0 sigri Roma á Pisa í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Malen er líklega bestu félagaskipti vetrargluggans en hann kom til félagsins á láni frá Aston Villa.

Sóknarmaðurinn setti sjö mörk í fyrstu ellefu deildarleikjunum og svo kom fyrsta þrennan í kvöld.

Malen gerði fyrsta markið á 3. mínútu er hann fékk boltann vinstra megin, skar sig inn á hægri og skoraði með laglegri afgreiðslu í hægra hornið.

Annað markið gerði hann undir lok fyrri hálfleiks eftir mikinn darraðadans og fullkomnaði hann síðan þrennuna í byrjun síðari hálfleiks er hann fékk boltann í miðjum teignum og var fljótur að spyrna honum neðst í vinstra hornið.

Tíu mörk í tólf leikjum hjá Malen sem var óumdeilanlega besti maður leiksins.

Roma er í 6. sæti deildarinnar með 57 stig og lifir draumurinn um að komast í Meistaradeildina góðu lífi en Pisa er á botninum með aðeins 18 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 37 27 5 5 86 32 +54 86
2 Napoli 37 22 7 8 57 36 +21 73
3 Roma 37 22 4 11 57 31 +26 70
4 Milan 37 20 10 7 52 33 +19 70
5 Como 37 19 11 7 61 28 +33 68
6 Juventus 37 19 11 7 59 32 +27 68
7 Atalanta 37 15 13 9 50 35 +15 58
8 Bologna 37 16 7 14 46 43 +3 55
9 Lazio 37 13 12 12 39 39 0 51
10 Udinese 37 14 8 15 45 47 -2 50
11 Sassuolo 37 14 7 16 46 49 -3 49
12 Torino 37 12 8 17 42 61 -19 44
13 Parma 37 10 12 15 27 46 -19 42
14 Genoa 37 10 11 16 41 50 -9 41
15 Fiorentina 37 9 14 14 40 49 -9 41
16 Cagliari 37 10 10 17 38 52 -14 40
17 Lecce 37 9 8 20 27 50 -23 35
18 Cremonese 37 8 10 19 31 53 -22 34
19 Verona 37 3 12 22 25 59 -34 21
20 Pisa 37 2 12 23 25 69 -44 18
Slapp
banner
banner