Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   fös 10. apríl 2026 21:37
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Real Madrid tapaði stigum á heimavelli - Titilbaráttan gæti ráðist á Camp Nou
Federico Valverde skoraði en það dugði ekki til
Federico Valverde skoraði en það dugði ekki til
Mynd: EPA
Real Madrid 1 - 1 Girona
1-0 Federico Valverde ('51 )
1-1 Thomas Lemar ('62 )

Spænska stórliðið Real Madrid gerði 1-1 jafntefli við Girona í 31. umferð La Liga á Santiago Bernabeu í kvöld.

Madrídingar byrjuðu á afturfótunum er Azzedine Ounahi átti skot sem Andriy Lunin varði frábærlega en eftir það tóku heimamenn völdin.

Jude Bellingham setti boltann rétt framhjá og þá átti Federico Valverde skot sem Paulo Gazzaniga varði. Snemma í þeim síðari skoraði Valverde. Úrúgvæinn er þekktur fyrir langskot sín og skoraði hann úr einu slíku á 51. mínútu.

Sá hefur verið funheitur upp á síðkastið en liðsfélagarnir brugðust honum tíu mínútum síðar er Thomas Lemar skaut boltanum á milli fóta hjá Eduardo Camavinga og framhjá vonlausum Lunin.

Madrídingar reyndu að taka öll stigin í lokin en höfðu ekki erindi sem erfiði. Jafntefli niðurstaðan og Madrídingar nú sex stigum á eftir Barcelona í titilbaráttunni, sem á einn leik inni.

Nú er komin upp sú staða að Barcelona gæti mögulega fagnað Spánarmeistaratitlinum þegar liðið tekur á móti Real Madrid í El Clásico þann 10. maí.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 34 29 1 4 89 31 +58 88
2 Real Madrid 34 24 5 5 70 31 +39 77
3 Villarreal 34 21 5 8 64 39 +25 68
4 Atletico Madrid 35 19 6 10 58 38 +20 63
5 Betis 35 13 15 7 54 43 +11 54
6 Celta 35 13 11 11 49 44 +5 50
7 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
8 Getafe 34 13 5 16 28 36 -8 44
9 Athletic 34 13 5 16 40 50 -10 44
10 Osasuna 35 11 9 15 42 45 -3 42
11 Vallecano 34 10 12 12 35 41 -6 42
12 Sevilla 35 11 7 17 43 56 -13 40
13 Elche 35 9 12 14 46 54 -8 39
14 Valencia 34 10 9 15 37 50 -13 39
15 Espanyol 35 10 9 16 38 53 -15 39
16 Mallorca 34 10 8 16 42 51 -9 38
17 Girona 34 9 11 14 36 51 -15 38
18 Alaves 35 9 10 16 41 54 -13 37
19 Levante 35 9 9 17 41 57 -16 36
20 Oviedo 34 6 10 18 26 54 -28 28
Slapp
banner
banner
banner