Arnór Ingvi Traustason, leikmaður KR, neyddist til að fara af velli í hálfleik í viðureign liðsins gegn Stjörnunni.
Undir lok fyrri hálfleiks fékk Arnór Ingvi Traustason högg í höfuðið eftir að hafa farið í tæklingu á Örvari Eggertssyni. Í kjölfarið þurfti hann aðhlynningu og var tekinn af velli í hálfleik.
Undir lok fyrri hálfleiks fékk Arnór Ingvi Traustason högg í höfuðið eftir að hafa farið í tæklingu á Örvari Eggertssyni. Í kjölfarið þurfti hann aðhlynningu og var tekinn af velli í hálfleik.
„Það lítur þannig út að hann hafi fengið vægan heilahristing. Ég ætla ekki að setja mig í læknisstellingar núna. Ég veit ekki hvað það þýðir.
Þetta tekur væntanlega viku, tíu daga. Við tökum engar áhættur með hann,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson aðspurður um meiðsli Arnórs eftir leikinn á föstudag.
KR mætir aftur Stjörnunni í Mjólkurbikarnum á miðvikudaginn, næsti leikur í deild er á sunnudaginn gegn Fram.



