Hlín Eiríksdóttir er í góðum gír bæði með félagsliði sínu á Ítalíu og með landsliðinu, þar sem hún nýtur þess að fá stórt hlutverk.
„Það er mjög gott, það er mjög gott að búa í Flórens. Komið vor þar fyrir nokkur síðan, þannig það er mjög gott. Mér líður vel í liðinu, fæ hlutverk sem ég er ánægð með, þjálfarinn trúir á mig og við spilum góðan fótbolta. Þannig ég er bara glöð.“
Hlín hefur í gegnum árin bæði spilað bæði sem kantmaður og framherji hvor skyldi vera hennar uppáhalds staða á vellinum?
„Þetta er góð spurning, ég er satt að segja bara mjög glöð ef ég fæ að vera á vellinum. Ég er að spila á kantinum úti á Ítalíu núna og það hefur bara gengið vel. Ég er kannski vanari að spila þar en ég er með ákveðna eiginlega sem að geta nýst vel sem framherji, sterk á boltann og get haldið honum vel. Ég held að það fari kannski eftir því hvernig liðið sem maður er í spilar en ég er fyrst og fremst glöð ef ég fæ að vera inn á vellinum.“
Það sem gleður hana einnig í þessu landsliðsverkefni er að hitta Örnu systur sína sem er komin aftur í hópinn eftir meiðsli.
„Það er svaka gaman, gaman fyrir mig og gaman fyrir hana að vera komin til baka eftir meiðsli.“
Aðspurð hvort það sé pressa á yngri systur þeirra, Bryndísi, segir hún það ekki vera tilfellið.
„Nei ég segi það nú ekki en það væri alveg gaman að sjá hana hérna einn daginn.“
Landsliðið hélt opna æfingu fyrir stuðningsmenn og voru svo mættar að árita eftir hana og segir Hlín viðbrögðin hafa verið frábær.
„Mjög vel, það var fullt af fólki sem mætti. Við sátum þarna og skrifuðum fyrir stelpurnar eftir æfingu í örugglega tvo tíma, eða já fyrir fólkið, þetta voru kannski mest megnis stelpur. Það var mjög gaman og ég held að það sé gefandi bæði fyrir okkur og fyrir þá sem að mæta Vonandi getum við endurtekið þetta einhver tímann.“
Hún vonast til að sjá sama stuðning á leiknum sjálfum.
„Vonandi sjáumst við!“

