Jamal Musiala hefur átt erfitt ár meiðslalega séð og hefur í heildina misst af rúmlega sjö mánuðum af síðustu tólf.
Oliver Kahn, fyrrum markvörður og forseti FC Bayern og landsliðsmarkvörður Þýskalands, hefur ráðlagt Musiala að sleppa því að fara með þýska landsliðinu á HM í sumar.
Kahn vill að Musiala hvíli sig frekar til að jafna sig endanlega eftir meiðslavandræðin. Musiala hefur ekki verið upp á sitt besta eftir endurkomuna úr meiðslum og segir Kahn að það gæti verið betra fyrir leikmanninn að sleppa HM til að forðast frekari meiðsli í framtíðinni. Kahn segir að Musiala verði að vera 100% líkamlega til að geta hjálpað Þjóðverjum á HM.
Musiala var spurður út í ummæli Kahn og segir að markmið sitt sé að fara með landsliðinu á HM. Musiala er 23 ára gamall og var í landsliðshópnum sem datt úr leik í riðlakeppninni á HM 2022 í Katar.
„Ég vil klárlega fara með á HM! Ég er ekki búinn að lesa nákvæmlega hvað hann sagði, en það leikur enginn vafi á því að ég vil fara með á HM í sumar. Þessa stundina er ég einbeittur að því að hjálpa Bayern að vinna alla mögulega titla og svo vil ég hjálpa landsliðinu í sumar," segir Musiala.


