Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 14:20
Ívan Guðjón Baldursson
Englandsmeistararnir hafa trú gegn PSG
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Leikmenn Liverpool hafa trú á getu sinni til að leggja Frakklands- og Evrópumeistara Paris Saint-Germain að velli er liðin mætast í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á þriðjudagskvöldið.

PSG er með tveggja marka forystu eftir þægilegan sigur í fyrri leiknum á heimavelli, sem hefði hæglega getað orðið stærri.

   08.04.2026 21:44
Slot: Heppnir að tapa bara 2-0


Dominik Szoboszlai og Virgil van Dijk, tveir af lykilmönnum Liverpool, hafa trú á endurkomu gegn PSG. Liðið öðlaðist sjálfstraust með sigri gegn Fulham um helgina og verður spennandi að fylgjast með stórleiknum á Anfield.

„Ég held að ég geti talað fyrir alla í Liverpool þegar ég segi að við höfum ennþá trú á þessu. Við getum snúið þessu við. Allir leikmenn trúa því, allt starfsliðið og hver einasti áhorfandi," sagði Ungverjinn öflugi.

Van Dijk er fyrirliði Liverpool og býst við hjálp frá stuðningsmönnum í heimaleiknum.

„Við megum ekki gleyma því að við erum að spila við ríkjandi Evrópumeistarana, þeir eru með frábært lið. Við getum samt unnið þessa viðureign með hjálp frá stuðningsmönnum. Ég er heppinn að hafa fengið að njóta þeirra forréttinda að spila fyrir framan þessa stuðningsmenn í mörg ár, ég hef upplifað magnaða sigra á þessum velli. Stuðningsmenn verða í lykilhlutverki ef við náum að snúa þessu við," sagði Van Dijk.

Arne Slot þjálfari viðurkenndi að Liverpool hafi verið heppnir að tapa aðeins 2-0 í fyrri leiknum í París.

„Auðvitað getum við snúið þessu við í seinni leiknum. Það getur allt gerst á Anfield. Við munum þurfa á stuðningsmönnum okkar að halda sem aldrei fyrr gegn þessu PSG liði," segir Slot.

   09.04.2026 10:32
Útskýrir af hverju hann setti Salah ekki inn á

Slapp
banner
banner
banner