Leiknismenn án sigurs eftir fyrstu tvo leiki sumarsins
Fyrsta tap sumarsins hjá Leikni leit dagsins ljós í kvöldsólinni sem var fyrir utan Kórinn í Kópavoginum í kvöld. Leikurinn var líflegur og mikill hasar einkennandi.
„Þetta náttúrulega byrjaði kannski ekkert voðalega fyrir okkur," sagði Kristófer Sigurgeirsson þjálfari Leiknis eftir leik. „Það var smá brekka þarna og eins og ég segi - við byrjum bara ekki nægjanlega vel en við náum að minnka muninn fyrir hálfleik."
Leiknisliðið lenti tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik og voru þau bæði úr föstum leikatriðum sem Leiknisliðið vill gefa sig út fyrir að vera sterkt í. „Við eigum ekki að vera í vandræðum með föst leikatriði - með þá menn sem við höfum, við erum stórir og við erum sterkir - þess vegna er maður extra svekktur yfir því," svaraði Kristó.

Lestu um leikinn: HK 3 - 2 Leiknir R.
"Svo í seinni hálfleik finnst mér við bara koma þokkalega vel inn í þetta og jöfnum og erum svona svolítið að reyna að sækja sigurmarkið en við fáum heldur betur blauta tusku í lokin"
"Maður veit alveg hvernig HK-ingarnir spila - þeir vilja spila langt og þeir vilja spila fast, það er bara svolítið sem við þurfum að matcha, plús það náttúrulega að bara spila okkar fótbolta - sem er að reyna að halda boltanum niðri og finna glufur til að komast í gegn"
"Mér fannst við vera að sækja öll stigin og sérstaklega í lokin - skjótum í stöng...þess vegna er maður bara sársvekktur að fá þessa sprengju í lokin - sem var náttúrulega bara geggjað mark"
Að lokum var Kristófer aðspurður um yfirvofandi lokun félagsskiptagluggans og hvort eitthvað væri mögulega í vændum Leiknismegin þar „Ég myndi ekki veðja á það - þessa stundina," svaraði Kristófer stutt og pent.