Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
   sun 12. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Unglingalandsliðsmaður semur í Víkinni
Mynd: Víkingur R.
Unglingalandsliðsmaðurinn Gestur Alexander Hafþórsson hefur undirritað sinn fyrsta samning við Íslandsmeistara Víkinga.

Gestur er fæddur árið 2010 og spilar stöðu miðjumanns, en hann lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki er hann kom inn á í 3-1 sigrinum á Þrótti í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.

Hann hefur þá spilað fimm landsleiki með yngri landsliðum Íslands og greinilega mikið hann spunnið.

„Gestur er mjög efnilegur knattspyrnumaður sem við Víkingar bindum miklar vonir við. Hann er mjög öruggur með boltann, hefur góða fyrstu snertingu og getur haldið boltanum í þröngum aðstæðum undir pressu. Lágur þyngdarpunktur, snerpa og útsjónarsemi einkenna hans leik. Hann getur leyst allar stöður á miðjunni en líður best sem hálfsvæðisleikmaður framarlega á vellinum þar sem pressan hans nýtist vel. Með áframhaldandi þróun og vinnu hefur Gestur Alexander Hafþórsson alla burði til að verða mjög góður leikmaður í framtíðinni,“ sagði Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála, um Gest.


Slapp
banner