Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Höfum unnið 58 titla á 15 árum"
Mynd: EPA
Real Madrid gerði óvænt jafntefli á heimavelli gegn Girona á föstudagskvöldið og er svo gott sem búið að missa af Spánarmeistaratitlinum.

Madrídingar eru þar að auki í slæmri stöðu í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir að hafa tapað fyrri leiknum gegn þýska stórveldinu FC Bayern á heimavelli. Þeir þurfa sigur í München til að komast í undanúrslitin.

Liðið er þegar dottið úr leik í spænska bikarnum og stefnir því í mikið vonbrigðatímabil fyrir félagið ef ekki tekst að sigra útileikinn gegn Bayern.

„Við erum búnir að vinna 58 titla á síðustu 15 árum. Þar á meðal höfum við unnið Meistaradeildina sex sinnum og Evrópukeppnina í körfubolta þrisvar. Þetta sannar á hvaða gæðastigi við erum sem klúbbur," segir Florentino Pérez, forseti Real Madrid.

„Það hefur mikið erfiði farið í hvern einasta af þessum titlum. Það er ekki auðvelt að sigra á þessu gæðastigi og þegar gengur illa er mikilvægt að geta litið inn á við til að bæta það sem hægt er að bæta.

„Við höfum búið til frábæra fjölskyldu hérna og samheldni Madrídinga er okkar sterkasta vopn. Við erum með einstaka sögu sem byggist á harðri vinnu, miklum fórnum og sterkum gildum sem endurspeglast í Real Madrid."

Slapp
banner
banner