Slúðurpakki dagsins er nokkuð magur en þó koma menn á borð við Anthony Gordon, Elliot Anderson, Yankuba Minteh og Nico Schlotterbeck við sögu.
FC Bayern hefur mikinn áhuga á Anthony Gordon, 25 ára kantmanni Newcastle United og enska landsliðsins. Arsenal hefur einnig verið orðað við hann. (Caughtoffside)
Manchester United vonast til að sigra nágranna sína í City í kappinu um miðjumanninn Elliot Anderson, 23. United ætlar að nota sambönd sín í enska landsliðinu til að sannfæra Anderson meðan HM stendur yfir í sumar. (Teamtalk)
Liverpool skoðar Yankuba Minteh, 21 árs kantmann Brighton, sem arftaka fyrir Mohamed Salah, 33. Arne Slot þjálfari Liverpool þekkir Minteh eftir að hafa þjálfað hann hjá Feyenoord. (Mirror)
Arsenal og Man City eru með í kapphlaupinu um Óscar Mingueza, 26 ára hægri bakvörð Real Betis. (Teamtalk)
Aston Villa og Leeds United hafa bæði áhuga á Danilho Doekhi, 27 ára varnarmanni Union Berlin. Tyrkneska stórveldið Besiktas fylgist einnig með honum. (Inside Futbol)
Tottenham er á höttunum eftir Arthur Vermeeren, 21 árs miðjumanni RB Leipzig. Hann lék á láni hjá Marseille og því þekkir Roberto De Zerbi þjálfari vel til hans. (Caughtoffside)
Real Madrid hefur ennþá áhuga á Nico Schlotterbeck, 26 ára varnarmanni Borussia Dortmund, þó að hann sé nýlega búinn að gera nýjan samning. (Goal)

