Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United tjáði sig um ensku goðsögnina Harry Kane sem er að gera frábæra hluti með FC Bayern í þýska boltanum.
Kane var einn af allra bestu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann var á mála hjá uppeldisfélagi sínu Tottenham, en hann varð þreyttur á því að vinna aldrei titla með liðinu. Því skipti hann yfir til Bayern sumarið 2023 og hefur verið óstöðvandi með stórveldinu.
Kane var á góðri leið með að verða markahæsti leikmaður í sögu enska boltans, en ákvað að skipta um félag til að auka möguleika sína á að vinna titla.
„Hefði Harry verið áfram hjá Tottenham í eitt eða tvö ár til viðbótar þá væri hann markahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar. Hann hefði verið goðsögn þó hann hefði ákveðið að vera áfram á Englandi," sagði Fernandes í viðtali við Times.
„Hann ákvað að fara til Bayern og það er góð ákvörðun. Það gefur honum aukin tækifæri til að vinna titla. Núna erum við að tala um Harry Kane sem er að skora svipað mikið af mörkum og hann gerði hjá Tottenham, munurinn er að núna gæti hann unnið Ballon d'Or útaf því að hann er að berjast um titla."
Kane getur búist við að berjast við einhverjar af skærustu stjörnum fótboltaheimsins í kapphlaupinu um Ballon d'Or. Ljóst er að árangur í Meistaradeildinni og á HM skiptir gífurlega miklu máli fyrir kjörið.


