Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   sun 12. apríl 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Juventus er búið að ná samkomulagi við nýja lykilmanninn
Jeremie Boga er heitur með Juventus og verður líklega áfram hjá liðinu næstu árin
Jeremie Boga er heitur með Juventus og verður líklega áfram hjá liðinu næstu árin
Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus er búið að ná samkomulagi við Fílabeinsstrendinginn Jeremie Boga um að hann leiki áfram með liðinu næstu árin, en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Boga er 29 ára gamall og kom til Juventus á láni frá Nice í vetrarglugganum.

Hann hefur haft mikil áhrif síðan hann kom og verið mikilvægur hlekkur í að koma Juve-mönnum í Meistaradeildarbaráttuna.

Í gær skoraði hann fjórða mark sitt með liðinu er það vann Atalanta, 1-0, í Bergamó.

Romano segir Juventus vera með samkomulag við Boga um að hann geri félagaskipti sín varanleg í sumar. Vængmaðurinn er með samkomulag um langtímasamning, en Juventus þarf að virkja kaupákvæðið í lánssamningnum sem nemur um fimm milljónum evra.

Ástæðan fyrir þessu lága verði er atvik sem kom upp í nóvember á síðasta ári er stuðningsmenn Nice réðust á leikmenn í liðsrútunni sem varð til þess að Boga tók sér fimm daga veikindaleyfi.

Hann gat ómögulega séð fyrir sér að snúa aftur á völlinn með Nice og samþykkti franska félagið á endanum að leyfa honum að fara aftur til Ítalíu en hann spilaði áður með Atalanta og Sassuolo þar sem hann gerði 22 mörk í 150 leikjum.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 36 27 4 5 85 31 +54 85
2 Napoli 36 21 7 8 54 36 +18 70
3 Juventus 36 19 11 6 59 30 +29 68
4 Roma 36 21 4 11 55 31 +24 67
5 Milan 36 19 10 7 50 32 +18 67
6 Como 36 18 11 7 60 28 +32 65
7 Atalanta 36 15 13 8 50 34 +16 58
8 Bologna 36 15 7 14 45 43 +2 52
9 Lazio 36 13 12 11 39 37 +2 51
10 Udinese 36 14 8 14 45 46 -1 50
11 Sassuolo 36 14 7 15 44 46 -2 49
12 Torino 36 12 8 16 41 59 -18 44
13 Parma 36 10 12 14 27 45 -18 42
14 Genoa 36 10 11 15 40 48 -8 41
15 Fiorentina 36 8 14 14 38 49 -11 38
16 Cagliari 36 9 10 17 36 51 -15 37
17 Lecce 36 8 8 20 24 48 -24 32
18 Cremonese 36 7 10 19 30 53 -23 31
19 Verona 36 3 11 22 24 58 -34 20
20 Pisa 36 2 12 22 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner
banner
banner