Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
   lau 11. apríl 2026 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Yngstur til að spila hundrað deildarleiki
Mynd: EPA
Spænski táningurinn Lamine Yamal setti met í grannaslag Barcelona og Espanyol í La Liga í dag.

Yamal, sem er 18 ára gamall, var að spila hundraðasta deildarleik sinn með Börsungum og fagnaði því með marki og tveimur stoðsendingum.

Hann er sá yngsti í sögu deildarinnar til að ná hundrað leikjum og slátraði meti Rául Gonzalez.

Yamal náði þessu meti 18 ára og 272 daga gamall en Raúl var 19 ára og 284 daga gamall þegar hann náði þessu afreki með Real Madrid undir lok síðustu aldar.

Iker Munian, sem spilaði með Athletic, var nálægt met Raúl á sínum tíma en hann var 19 ára og 293 daga gamall þegar hann lék sinn hundraðasta leik árið 2012.

Ótrúlegt afrek hjá Yamal sem færist nær þriðja deildarmeistaratitlinum með Barcelona en liðið er með níu stiga forystu á Real Madrid sem er í öðru sæti.


Slapp
banner