Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
   sun 12. apríl 2026 00:16
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Allt klárt fyrir undanúrslitin - Þjálfarinn skoraði í sigri á Króknum
Haukar eru komnir í undanúrslit
Haukar eru komnir í undanúrslit
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Eggert Gunnþór skoraði í 5-2 sigri KFA
Eggert Gunnþór skoraði í 5-2 sigri KFA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það liggur nú fyrir hvaða fjögur lið spila í undanúrslit B-deildar Lengjubikars karla, en Haukar voru síðasta liðið til að tryggja þangað með því að gera 2-2 jafntefli við Víði í toppbaráttuslag.

Dalvík/Reynir, Fjölnir og Víkingur Ólafsvík voru öll búin að tryggja sig áfram fyrir daginn í dag.

Í dag mættust síðan Haukar og Víðir í knatthúsi Hauka þar sem liðin skiptust á að skora í þeim síðari.

Ævar Daði Segatta kom Haukum yfir á 50. mínútu en Ísak John Ævarsson, sem hefur verið öflugur upp á síðkastið, jafnaði úr vítaspyrnu átta mínútum síðar. Haukur Darri Pálsson kom Haukum aftur yfir á 69. mínútu.

Fjórum mínútum síðar svöruðu Víðismenn með marki sem reyndist það síðasta í leiknum. Víðir þurfti sigur til að hirða toppsætið á meðan Haukum dugði jafntefli til að fara áfram í undanúrslitin.

Í D-riðlinum skoraði Eggert Gunnþór Jónsson, þjálfari KFA, í 5-2 sigri á TIndastóli á Sauðárkróksvelli.

Jawed Boumeddane gerði tvö mörk og þeir Matheus Da Silva, Eggert Gunnþór og Óðinn Helgason hin þrjú mörkin.

Í A-riðli C-deildar vann Kría 6-0 stórsigur á Afríku. Tómas Helgi Snorrason skoraði þrennu fyrir Kríu sem hafnaði í 4. sæti riðilsins með 7 stig. Afríka er í næst neðsta sæti með 3 stig.

Hörður Kárason skoraði tvennu í 3-0 sigri Álftnesinga á Skallagrím í B-riðlinum. Í sama riðli hafði Léttir 4-3 sigur gegn SR. Álftanes er á toppnum með 9 stig, SR í öðru með 6 stig eins og svo kemur Léttir í þriðja sætinu með 6 stig en slakari markatölu en SR.

KFR er búið að tryggja sig áfram í undanúrslitin eftir 1-1 jafntefli gegn Stokkseyri.

KFR er á toppnum í riðlinum með 13 stig en Stokkseyri í 3. sæti með 7 stig.

Hamar tók toppsætið í D-riðli. Það var tryggt í 1-1 jafntefli liðsins gegn Hömrunum. Hamar hafnaði í efsta sæti með 8 stig, einu meira en Elliði og Smári.

Úrslit og markaskorarar:

B-deild - A-riðill:

Augnablik 0 - 0 KÁ

B-deild - C-riðill:

Haukar 2 - 2 Víðir
1-0 Ævar Daði Segatta ('50 )
1-1 Ísak John Ævarsson ('58, víti )
2-1 Haukur Darri Pálsson ('69 )
2-2 Kristófer Snær Jóhannsson ('73 )

B-deild - D-riðill:

Tindastóll 2 - 5 KFA
0-1 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('2 )
0-2 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('10 )
0-3 Matheus Bissi Da Silva ('30 )
1-3 Tiago Castanheira Assis ('45 )
2-3 Jónas Aron Ólafsson ('65 )
2-4 Eggert Gunnþór Jónsson ('75 )
2-5 Óðinn Þór Helgason ('80 )

C-deild - A-riðill:

Kría 6 - 0 Afríka
1-0 Tómas Helgi Snorrason ('20 )
2-0 Tómas Helgi Snorrason ('28 )
3-0 Kristófer Melsted ('52 )
4-0 Tómas Helgi Snorrason ('85 )
5-0 Markús Þórðarson ('87 )
6-0 Páll Bjarni Bogason ('90 )

C-deild - B-riðill:

Skallagrímur 0 - 3 Álftanes
0-1 Stefán Smári Halldórsson ('27 )
0-2 Hörður Kárason ('57 )
0-3 Hörður Kárason ('90 )

SR 3 - 4 Léttir
0-1 Kristján Jóhannesson ('6, víti )
0-2 Jóhann Mikael Gunnarsson ('8 )
1-2 Hrafn Ingi Jóhannsson ('17, víti )
1-3 Árni Benediktsson ('26 )
1-4 Kristján Jóhannesson ('53 )
2-4 Kristján Daníel Arnar ('61 )
3-4 Alexander Máni Jónsson ('71 )

C-deild - C-riðill:

KFR 1 - 1 Stokkseyri
0-1 Gunnar Flosi Grétarsson ('77 )
1-1 Helgi Valur Smárason ('86 )

C-deild - D-riðill:

Hamrarnir 1 - 1 Hamar
0-1 Guido Rancez ('15 )
1-1 Gauti Snær Einarsson ('90 )
Slapp
banner
banner