Rennes blandaði sér af alvöru í baráttuna um Meistaradeildarsæti með því að vinna fallbaráttulið Angers, 2-1, í frönsku deildinni í kvöld.
Rennes komst yfir á 12. mínútu er Marius Louer stýrði fyrirgjöf Mahdi Camara í eigið net.
Þrettán mínútum síðar bætti Mousa Tamari við öðru marki Rennes sem fékk háa sendingu inn fyrir. Markvörður Angers kom út á móti og minnti afgreiðslan hjá Tamari óneitanlega mikið á þá sem Gylfi Þór Sigurðsson átti gegn Blikum í opnunarumferð Bestu deildarinnar í gær.
Angers, sem náði óvæntu jafntefli gegn Lyon á dögunum, minnkaði muninn tæpum hálftíma fyrir leikslok er hinn 18 ára gamli Prosper Peter fékk boltann inn fyrir vörnina, setti hann í ágætis hæð fyrir Brice Samba í markinu sem var ekki með nægilega sterkan úlnlið og hafnaði boltinn í netinu.
Gestirnir fengu dauðafæri til að jafna á 81. mínútu er þeir fengu vítaspyrnu en Samba sá við Amine Sbai. Stór varsla frá Samba og Rennes nú með 50 stig í 5. sæti, jafnmörg og Lille sem er í 4. sætinu á markatölu. Angers er í 13. sæti með 33 stig, níu stigum fyrir ofan fallsæti.
Auxerre og Nantes gerðu markalaust jafntefli í fallbaráttuslag í Auxerre.
Úrslit sem bæði lið eru eflaust svekkt með. Auxerre þá sérstaklega að hafa ekki unnið á heimavelli, en liðið er í þriðja neðsta sæti með 24 stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Í þessu örugga sæti er Nice sem á leik til góða gegn Le Havre á morgun.
Nantes er á meðan í næst neðsta sæti með 19 stig.
Auxerre 0 - 0 Nantes
Rennes 2 - 1 Angers
1-0 Marius Louer ('12 , sjálfsmark)
2-0 Mousa Tamari ('25 )
2-1 Prosper Peter ('65 )
2-1 Amine Sbai ('81 , Misnotað víti)



