Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 12:15
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið dagsins: De Zerbi og Howe breyta miklu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þrír leikir hefjast samtímis í ensku úrvalsdeildinni í dag og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Spútnik nýliðar Sunderland taka á móti Tottenham Hotspur sem er í fallsæti fyrir upphafsflautið. Roberto De Zerbi er nýtekinn við hjá Spurs og er þetta hans fyrsti leikur við stjórnvölinn eftir slakt gengi undir stjórn Igor Tudor.

Régis Le Bris þjálfari Sunderland gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu sem mætti síðast til leiks undir hans stjórn gegn Newcastle í mars og fór með sigur af hólmi á útivelli. Það eru þrjár vikur síðan lærlingar hans spiluðu fótboltaleik saman.

Robin Roefs er kominn aftur á milli stanganna en Dan Ballard er meiddur og því spilar Luke O'Nien áfram í hjarta varnarinnar. Nordi Mukiele, Reinildo Mandava og Enzo Le Fée koma einnig inn í byrjunarliðið ásamt Roefs.

De Zerbi gerir fimm breytingar á liði Tottenham sem hefur heldur ekki spilað fótboltaleik síðan 22. mars, alveg eins og Sunderland. Antonín Kinský er á milli stanganna eftir að aðalmarkvörðurinn Guglielmo Vicario fór í aðgerð.

Hann teflir fram 4-3-3 uppstillingu þar sem Conor Gallagher, Destiny Udogie, Lucas Bergvall og Randal Kolo Muani koma inn í byrjunarliðið.

Nottingham Forest mætir þá til leiks með sama lið og sigraði gegn Tottenham fyrir landsleikjahléð, en Vítor Pereira þjálfari breytir níu leikmönnum frá jafnteflinu gegn Porto í Evrópudeildinni. Þar eru það aðeins Morgan Gibbs-White og Murillo sem halda sæti sínu í byrjunarliðinu á milli leikja.

Forest tekur á móti Aston Villa og þar gerir Unai Emery nokkrar breytingar á byrjunarliðinu. Youri Tielemans er í byrjunarliðinu eftir flotta frammistöðu gegn Bologna í miðri viku og fær Ezri Konsa hvíld frá hjarta varnarinnar. Þá byrjar Ross Barkley á miðjunni.

Að lokum gerir Oliver Glasner fimm breytingar á byrjunarliði Crystal Palace sem sigraði Fiorentina í Evrópudeildinni í miðri viku. Hann skiptir út allri sóknarlínunni þar sem Brennan Johnson, Yeremy Pino og Jörgen Strand-Larsen fá tækifæri í dag.

Jefferson Lerma og Will Hughes byrja þá saman á miðjunni í stað Adam Wharton og Daichi Kamada.

Palace tekur á móti Newcastle United og gerir Eddie Howe hvorki meira né minna en sex breytingar á byrjunarliðinu sem tapaði gegn Sunderland fyrir þremur vikum.

Sandro Tonali, Lewis Miley, Malick Thiaw, Will Osula, Tino Livramento og Jacob Murphy koma inn í byrjunarliðið. Nick Woltemade og Harvey Barnes eru meðal leikmanna sem setjast á bekkinn.

Sunderland: Roefs, Mukiele, O'Nien, Alderete, Reinildo, Xhaka, Sadiki, Diarra, Rigg, Le Fee, Brobbey.
Varamenn: Ellborg, Hume, Geertruida, Cirkin, J. Jones, H. Jones, Talbi, Mayenda, Isidor.

Tottenham: Kinsky; Porro, Romero, Van de Ven, Udogie; Gray, Gallagher, Bergvall; Kolo Muani, Solanke, Richarlison.
Varamenn: Austin, Dragusin, Danso, Palhinha, Xavi, Bissouma, Tel, Spence, Sarr.



Nott. Forest: Sels, Aina, Milenkovic, Murillo, Williams, Sangare, Anderson; Hutchinson, Gibbs-White, Hudson-Odoi, Jesus
Varamenn: Ortega, Morato, Wood, Ndoye, Dominguez, Yates, McAtee, Netz, Bakwa

Aston Villa: Martinez, Cash, Lindelof, Torres, Digne, Onana, Tielemans, Barkley, McGinn, Rogers, Watkins
Varamenn: Bizot, Konsa, Buendia, Garcia, Abraham, Luiz, Maatsen, Bogarde, Bailey



Crystal Palace: Henderson, Muñoz, Richards, Lacroix, Canvot, Mitchell, Lerma, Hughes, Johnson, Pino, Strand-Larsen.
Varamenn: Matthews, Benitez, Clyne, Sosa, Riad, Kamada, Wharton, Devenny, Sarr, Mateta.

Newcastle: Ramsdale, Hall, Botman, Joelinton, Tonali, Gordon, Thiaw, Osula, Livramento, Murphy, Miley.
Varamenn: Pope, Trippier, Wissa, Barnes, Elanga, Woltemade, Willock, Burn, Ramsey.
Slapp
banner