Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   sun 12. apríl 2026 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Bayern sló markametið
Bæjarar eru sjóðandi heitir undir stjórn Kompany
Bæjarar eru sjóðandi heitir undir stjórn Kompany
Mynd: EPA
Vincent Kompany er að gera gott mót með Bayern München í Þýskalandi en lærisveinar hans slógu markamet þýsku deildarinnar í 5-0 stórsigrinum á St. Pauli í gær.

Bæjarar voru aðeins einu marki frá því að jafna markametið sem var einmitt líka í eigu Bayern frá 1972.

Þá skoraði Bayern 101 mark í deildinni og í raun ótrúlegt að það hafi tekið svona langan tíma að setja nýtt met.

Jamal Musiala jafnaði metið snemma leiks og var það síðan Leon Goretzka sem sá um að slá það þegar hann skoraði eftir aukaspyrnu Joshua Kimmich.

Bayern skoraði þrjú mörk til viðbótar í leiknum og hefur því gert 105 mörk í aðeins 29 leikjum.

Í 27 af 29 leikjum hefur Bayern skorað tvö mörk eða meira. Það hefur verið mikið flæði í sóknarleik Bayern og í raun ótrúlegt hvað Kompany hefur gert með liðið.

Hann hefur sjálfur unnið 76 leiki í fyrstu 100 leikjum sínum með Bayern, en aðeins Pep Guardiola skákar honum þar með 77 sigra í fyrstu 100 leikjum með þýska liðið.

Um næstu helgi getur Bayern varið deildarmeistaratitilinn en til þess þarf liðið að vinna Stuttgart og treysta á að Borussia Dortmund tapi stigum gegn Hoffenheim.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner
banner