Logi Hrafn Róbertsson opnaði markareikninginn með sænska félaginu Värnamo með stæl þegar það vann 3-0 sigur á Sundsvall í B-deildinni í kvöld.
FH-ingurinn gerði annað mark Värnamo með frábæru skoti upp í samskeytin þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum.
Fyrsta mark hans fyrir Värnamo síðan hann kom frá króatíska félaginu Istra.
Þetta var líka fyrsti sigur Värnamo í deildinni á þessu tímabili, en liðið er með þrjú stig eftir tvo leiki. Srdjan Tufegdzic, fyrrum þjálfari Grindavíkur, KA og Vals, er þjálfari Värnamo.
„Boltinn datt fyrir framan mig og ég ákvað að skjóta. Ég hitti hann mjög vel og úr varð þetta fínasta mark,“ sagði Logi um markið.
Alveg óhætt að segja að þetta sé eitt af mörkum tímabilsins til þessa.
Logi Hrafn Róbertsson gör sitt första mål för IFK Värnamo med en projektil! ????
— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) April 14, 2026
Se alla höjdpunkter från Superettan på Fotbollskanalen genom länken nedan!https://t.co/EXJYzU1okK pic.twitter.com/srk2z4ojuY



