Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 16. nóvember 2022 12:52
Elvar Geir Magnússon
Bjórinn kostar um 2 þúsund krónur á HM í Katar
Mynd: Getty Images
Fótboltaáhugafólk þarf að reiða fram um 2 þúsund krónur til að fá sér hálfan lítra af Budweiser bjór (sem er opinber bjór keppninnar) á HM í Katar. Þá eru sett takmörk við að aðeins megi kaupa fjóra bjóra í hverri pöntun.

Guardian fjallar um verðlagið á bjórnum en hver bjór er seldur á 12 pund.

Þá þarf einstaklingur sem kaupir bjór að sýna fram á að hann sé eldri en 21 árs.

Bjórinn er seldur á afmörkuðum svæðum og að beiðni yfirvalda í Katar er reynt að hafa þau ekki sýnileg.

Samkvæmt reglum í Katar er óheimilt að vera ölvaður á almannafæri og eru aðeins nokkrir staðir sem bjóða upp á áfengi í olíuríkinu.
Athugasemdir
banner
banner