mið 16. nóvember 2022 15:32
Elvar Geir Magnússon
Króatía ósannfærandi en vann sigur í síðasta leik fyrir HM
Mynd: Getty Images
Það eru margir vináttulandsleikir á dagskrá í dag og hin ýmsu landslið að undirbúa sig fyrir HM. Þar á meðal eru Sádi-Arabía og Króatía sem mættust í vináttulandsleik í Ríad.

Króatía vann þar 1-0 sigur, frammistaða liðsins var þó ekki góð en Luka Modric, sem kom inn af bekknum, lagði upp eina markið fyrir Andrej Kramaric. Markið má sjá hér að neðan.

Hinn 37 ára gamli Modric var valinn besti maður HM í Rússlandi 2018 og spilaði einnig í Þýskalandi 2006 og Brasilíu 2014.

Íran og Túnis eru komin til Katar og mættust í vináttuleik í Doha í dag. Tunis vann 2-0 sigur þar sem Naim Sliti og Ali Abdi skoruðu.


Athugasemdir
banner
banner
banner