Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 10:32
Elvar Geir Magnússon
Hraunað yfir Twana sem dæmdi rétt - Nýtt sjónarhorn á atvikið umtalaða
Twana í leik ÍBV og Vals í gær.
Twana í leik ÍBV og Vals í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Mark Duffield eftir leikinn í gær.
Bjarni Mark Duffield eftir leikinn í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eyjamenn voru allt annað en sáttir við að fá ekki vítaspyrnu í 0-1 tapi liðsins gegn Val í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær, á blautum Þórsvellinum

Dómarinn Twana Khalid Ahmed fékk harða gagnrýni frá Þorláki Árnasyni þjálfara ÍBV, Herði Magnússyni sérfræðingi RÚV og fleirum fyrir að hafa ekki dæmt hendi á Bjarna Mark Duffield.

Twana hefur þó séð atvikið betur en sjónvarpsvélarnar og sérfræðingarnir því Valur birti í morgun á samfélagsmiðlum sínum nýtt sjónarhorn af atvikinu og þar sést að ekki er um hendi að ræða.

Bjarni Mark sagði sjálfur við félaga sína eftir leik að boltinn hefði ekki farið í höndina á sér og nýju upptökurnar sýna að það var svo sannarlega rétt hjá honum.

„Hann fór aldrei í höndina á mér," eru ummæli frá Bjarna sem Valsmenn birta með myndbandinu en nýja sjónarhornið má sjá hér að neðan.

Twana fékk reyndar ekki bara gagnrýni eftir leikinn í gær heldur einnig hrós.

„Það er oft þannig að þjálfararnir sem tapa leikjum tala um dómgæsluna. Þetta var erfiður leikur að dæma en mér fannst Twana flottur. Hann er yfirleitt með góða stjórn á þeim leikjum sem hann hefur dæmt hjá okkur," sagði Túfa, þjálfari Vals.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  1 Valur



   19.06.2025 21:05
Láki: Til skammar hversu einhliða dómgæslan var

   19.06.2025 22:28
Höddi Magg: Eyjamenn eru bara rændir

   19.06.2025 20:47
Túfa hrósar Twana: Þjálfarar sem tapa tala oft um dómgæsluna

Athugasemdir
banner