ÍR 2 - 0 Álftanes
1-0 Hólmfríður Þrastardóttir ('78 )
2-0 Ísabella Sif Elmarsdóttir ('80 )
1-0 Hólmfríður Þrastardóttir ('78 )
2-0 Ísabella Sif Elmarsdóttir ('80 )
ÍR er komið áfram í aðra umferð Mjólkurbikars kvenna eftir að hafa unnið Álftanes, 2-0, í Egilshöllinni í kvöld.
Hólmfríður Þrastardóttir og Ísabella Sif Elmarsdóttir skutu ÍR-ingum áfram með mörkum á tveimur mínútum undir lok leiksins.
Þær eru nú skrefi nær því að komast í 16-liða úrslitin, en ÍR mun mæta Tindastól í næstu umferð.
Leikurinn fer fram 26. apríl og er spilaður á Sauðárkróksvelli.


