Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo skoraði og fór með Al Nassr í undanúrslit
Ronaldo á möguleika á því að vinna tvo titla á næstu vikum
Ronaldo á möguleika á því að vinna tvo titla á næstu vikum
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo skoraði 969. markið á ferlinum í 4-0 stórsigri Al Nassr á Al Wasl í 8-liða úrslitum í Asíukeppni félagsliða í dag.

Ronaldo og félagar spila í næst bestu keppninni í Asíu þetta tímabilið og var Ronaldo sparaður í fyrstu leikjum keppninnar.

Hann ætlar nú að sækja gullið með Al Nassr, en liðið komst skrefi nær því markmiði með sigrinum á Al Wasl.

Portúgalinn gerði fyrsta mark Al Nassr sem var hans 969. mark á ferlinum og er hann nú aðeins 31 marki frá því að rjúfa þúsund marka múrinn.

Inigo Martinez, Abdulelah Al Amri og Sadio Mane komust einnig á blað hjá Al Nassr sem mætir Al Ahli frá Katar í undanúrslitum, en þar má finna nokkur þekkt nöfn á borð við Julian Draxler, sem lék með PSG og þýska landsliðinum ásamt William Troos-Ekong, fyrrum leikmanni Watford og Udinese.

Búið er að spila hitt undanúrslitaeinvígið, en Al Nassr eða Al Ahli mun mæta japanska liðinu Gamba Osaka í úrslitum keppninnar.

Ronaldo á góðan möguleika á því að vinna tvo titla á þessu tímabili, en Al Nassr er einnig á toppnum í sádi-arabísku deildinni með átta stiga forystu þegar fimm umferðir eru eftir.


Slapp
banner
banner