HS Orku völlurinn, heimavöllur Keflvíkinga, er að taka hratt við sér og ætla Keflvíkingar að spila á grasinu á miðvikudag þegar Breiðablik kemur í heimsókn.
Það eru góðar fréttir að völlurinn sé að taka við sér og vonandi verður hann ágætur á miðvikudag.
Það eru góðar fréttir að völlurinn sé að taka við sér og vonandi verður hann ágætur á miðvikudag.
Það eru fleiri góðar fréttir úr Keflavík því samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur fengið eru góðar líkur á því að Þorlákur Breki Baxter geti spilað með liðinu gegn Blikum.
Hann og Stefan Alexander Ljubicic voru fjarri góðu gamni gegn Fram á föstudag en Breki gæti spilað á miðvikudag. Stefan er tæpur og ólíklegt er að hann taki þátt. Frans Elvarsson, fyrirliði liðsins, er áfram fjarverandi.
Breki (2005) var keyptur til Keflavíkur frá Stjörnunni í vetur og hefur miðjumaðurinn komið vel inn í liðið.
Keflavík er án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í Bestu deildinni.



