Guðmundur Arnar er fjölhæfur leikmaður sem uppalinn er hjá Vestra og hefur leikið allan sinn feril fyrir vestan, annað hvort með Vestra eða venslaliðinu Herði.
Á síðasta tímabili kom hann við sögu í 17 leikjum í Bestu deildinni og fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum þegar Vestri varð bikarmeistari. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Á síðasta tímabili kom hann við sögu í 17 leikjum í Bestu deildinni og fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum þegar Vestri varð bikarmeistari. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Guðmundur Arnar Svavarsson
Gælunafn: Gummi, vinirnir kalla mig Stuðmundur eða Stuði
Aldur: 23
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: 2017, sigur á Magna, ég spilaði einhverjar 3 mínútur.
Uppáhalds drykkur: Drekk svona 3 lítra af kirsuberja Fun light á dag
Uppáhalds matsölustaður: Thai Tawee og Ísey skyrbar
Uppáhalds tölvuleikur: Erfitt að toppa Fortnite á sínum tíma
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Já
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Peaky blinders, svo er Gulli byggir og Heimsókn frábært efni
Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir
Uppáhalds hlaðvarp: Steve Dagskrá
Uppáhalds samfélagsmiðill: Tiktokið
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: .net
Fyndnasti Íslendingurinn: Hef helvíti gaman að Hjamma
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Hvað er planið? Frá Marvin
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Sindra eða eitthvað, þreytt ferðalag vestur
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Luke Matheson var algjör skepna.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Jón Hálfdán, þar dugðu engin vettlingatök.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Luke Rae er óþolandi snöggur
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Gerrard og Neymar
Sætasti sigurinn: Erfitt að segja ekki Bikarúrslitin í fyrra
Mestu vonbrigðin: Að falla í fyrra
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Tæki Daða Berg aftur heim, drengur góður og ágætis leikmaður.
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Benedikt Tómasson
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Þegar Gunnar Jónas klippari með meiru gerir sig til er hann mjög huggulegur.
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi:
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Myndi stytta framlengingar í 2x10 mín, þær eru alltof langar
Uppáhalds staður á Íslandi: Fyrsti teigur á Syðridalsvelli í Bolungarvík
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það var frekar skrítið að mæta tengdapabba mínum 24 tímabilið, viðurkenni það.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Er alltaf í sömu nærbuxum í sérstökum leikjum. Svo fæ ég alltaf bjarnarknús frá Marvin áður en við löbbum út.
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Pílunni um jólin, úrslitakeppninni í körfunni og golfi af og til.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Skipti á milli Vapor og Phantom, fer eftir því í hvernig stuði ég vakna þann daginn.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Fæ ennþá martraðir yfir efnafræðinni
Vandræðalegasta augnablik: Fékk 14 mínútna hárblásara frá Jóni Þór í hálfleik 2021, var svo tekin út af eftir 5 mínútur í seinni hálfleik. Hugsa ennþá um þetta í dag.
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Tæki líklega Messi, Neymar og Suarez. Færum aðeins yfir gömlu góðu tímana.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Þórður má eiga það að hann er frábær í klefa, alltaf einhverjar nýjar lygasögur á hverjum degi.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Þessi er auðveld, Elmar my captain væri svindlkall í Survivor. Svo er lífið hans Breka reyndar bara einn langur Bachelor þáttur.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Bjó í Manchester þegar ég var yngri og fór á reynslu hjá United á Carrington. Það var sæmilega reality checkið.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Cafu, ég bjóst við hrokafullum leiðindapésa en hann er toppmaður.
Hverju laugstu síðast: Hættur að ljúga það kemur alltaf í bakið á mér
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Activation með Ferran styrktarþjálfara getur verið alveg drepleiðinlegt.
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Slot af hverju hann sé ekki búinn að byrja Rio litla Ngumoha allt tímabilið.
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Sjáumst einhvers staðar í Evrópu í sumar



